Til Moskvu, til Moskvu, til Moskvu! - Aukaútgáfa af Víðsjá - a podcast by RÚV

from 2021-12-03T17:03

:: ::

Víðsjá - Til Moskvu, til Moskvu Til Moskvu! - sérstök útgáfa af Víðsjá Víðsjá er í dag send heim til Íslands frá Moskvu þar sem myndlistarmaðurinn Ragnar Kjatansson er að opna nýja sýningu sem heitir Til Moskvu, til Moskvu, til Moskvu! í glænýrri menningarmiðstöð sem hann fær að opna hér í borg og heitir GES-2. Byggingin, sem áður var orkuver og knúði stjórnarsetrið Kreml, hefur nú fengið nýjan tilgang og gengið í endurnýjun lífdaga en það er ítalski arkitektinn Renzo Piano sem stýrði endurhönnuninni. Í þættinum er rætt við Ragnar um þetta risavaxna verkefni hans og samstarfsmanna hans, en hjarta sýningarinnar er margra mánaða langur gjörningur eða innsetning þar sem rússneskir leikarar leika einn þátt á dag af bandarísku sápuóperunni Santa Barbara, en sýningar á henni hófust skömmu eftir fall Sovétríkjanna á sínum tíma. Yfirleikstjóri þess verkefnis er Ása Helga Hjörleifsdóttir. Umsjón með Víðsjá í dag hefur Guðni Tómasson sem er staddur í Moskvu en viðmælendur hans eru auk Ragnars Kjartanssonar þau Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Ragnar Helgi Ólafsson, Unnar Örn Jónsson Auðarson, Hildigunnur Brigisdóttir, Magnús Sigurðarson og Francesco Manacorda.

Further episodes of Víðsjá

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV