Skálholt, Listasafnið á Akureyri, dans, myndlist í Norræna húsinu - a podcast by RÚV

from 2021-11-22T16:05

:: ::

Við ætlum að huga að menningarlífinu á Akureyri næstu vikur hér í Víðsjá. Guðni hélt í leiðangur á dögunum og kynnti sér starfsemi nokkurra menningarstofnana í höfuðstað Norðurlands. Í dag förum við með Guðna í Listasafnið þar sem hann ræddi við Hlyn Hallsson safnstjóra. Og frá Akureyri höldum við í Skálholt. Þorgerður Ása heimsótti Jón Bjarnason organista í Skálholtskirkju en hann fékk á dögunum menningarverðlaun suðurlands. Under Pressure með hljómsveitinni Queen í orgelbúningi, söfnun fyrir nýjum flygli og þjóðsöngur Biskupstungnamanna um Kristján í Stekkholti, er meðal þess sem bar á góma í samtalinu sem við heyrum undir lok þáttar. Reykjavík Dance Festival gladdi borgarbúa í liðinni viku með fjölbreyttum dansverkum eftir bæði hérlenda og erlenda höfunda. Snæbjörn Brynjarsson fór á nokkrar sýningar og segir frá upplifun sinni hér rétt á eftir. Og Ólöf Gerður Sigfúsdóttir lagði leið sína í Hvelfinguna, sýningarsal Norræna hússins, þar sem nú stendur yfir aðkallandi sýning um jarðfræðileg og jarðsöguleg fyrirbæri af ýmsum toga. Við heyrum betur af henni hér á eftir.

Further episodes of Víðsjá

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV