Objective, Draumur um ferðalag, VERA og Hal Sirowitz - a podcast by RÚV

from 2021-06-24T16:05

:: ::

Björn Erlingsson verður gestur þáttarins en hann gaf á dögunum út plötuna Draumur um ferðalag. Við heyrum um íslenskan heimilisiðnað þar sem Björn spilar á öll hljóðfæri og mælir kveðskap sinn af munni fram. Við heimsækjum líka Ásmundarsal til þess að athuga með sýninguna Hang around / Pool around / Fly around þar sem þverfaglega hönnunarteymið Objective, sem skipað er þeim Jónu Berglindi Stefánsdóttur textílhönnuði og Helgu Láru Halldórsdóttur fatahönnuði, sýnir verk sín. Á línunni verður listamaðurinn Iða Brá Ingadóttir en í lok maí opnaði hún sýninguna VERA í Listasal Mosfellsbæjar. Viðfangsefni sýningarinnar er ástandið milli svefns og vöku. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson kíkir í heimsókn og ræðir nýútkomna ljóðaþýðingu bandaríska ljóðskáldsins Hal Sirowitz. Bókin Sagði sálfræðingurinn minn kom nýlega út í þýðingu Aðalsteins, sem segir frá höfundi og les nokkur ljóð. Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Tómas Ævar Ólafsson

Further episodes of Víðsjá

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV