Nóbellinn, Parthenon, Cauda Collective og listþörfin - a podcast by RÚV

from 2021-10-07T16:05

:: ::

Víðsjá 7. október 2021 Sænska akademían tilkynnti í morgun að Abdulrazak Gurnah fái Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Í rökstuðningi akademíunnar segir að Gurnah fái verðlaunin fyrir að fjalla um áhrif nýlendustefnunnar á óvæginn og skarpskyggnan hátt í skáldverkum sínum, fyrir að fjalla um örlög flóttamanns sem staddur er í gjá milli menninga og heimsálfa. Víðsjá heyrir af ánægju Tansaníumanna með veitingu verðlaunanna. Og nýlendustefnan kemur einnig fyrir þegar Víðsjá kynnir sér tveggja alda gamla deilu á milli Bretlands og Grikklands. Deilan um Parthenon verkin hefur staðið allt frá því að Elgin lávarður tók þau af Akrópólisarhæð árið 1801 og seldi þau síðar breska ríkinu. UNESCO hefur reynt að miðla málum í deilunni undanfarna áratugi en án árangurs. Það dró þó til tiðinda í vikunni þegar UNESCO tók í fyrsta sinn afdráttarlausa afstöðu með endurheimt þessara merku menningarminja og biðlaði til Breta um að skila verkunum heim til Grikklands. Rætt verður við Guðrúnu Dröfn Whitehead, lektor í safnafræði, um málið. Tvær tónlistarkonur heimsækja Víðsjá, þær Þórdís Gerður Jónsdóttir sellóleikari og Sigrún Harðardóttir fiðluleikari, en þær leika ásamt víóluleikaranum Þóru Margréti Sveinsdóttur á nýlegri plötu tónlistarhópsins Cauda Collective þar sem unnið er með fornan tónarf þorlákstíða. Þær þrjár semja og spinna tónlist út frá þessum forna arfi á forvitnilegan hátt. Og Dagur Hjartarsson flytur hlustendum pistil eins og hann gerir hér í Víðsjá aðra hverja víku. Dagur er sem fyrr með hugann við listþörfina og ímyndunaraflið. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.

Further episodes of Víðsjá

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV