Muggur, Rask, Jarðsetning og tár og grátur - a podcast by RÚV

from 2021-09-30T16:05

:: ::

Víðsjá 30. september Víðsjá heldur í dag í heimsókn í Listasafn Íslands þar sem sýning á verkum myndlistarmannsins Muggs, Guðmundar Thorsteinssonar, verður opnuð á laugardag. Sýningarstjórinn Kristín Guðnadóttir hefur safnað saman verkum listamannsins og ritað glæsilega sýningarskrá um Mugg. Víðsjá hittir Kristínu í safninu að þessu tilefni. Föstudaginn 1. október verður haldin gjörningaveislan Festival for spontaneous Arts í Mengi á Óðinsgötu. Það er Next festival og Rask listamannakollektíf sem standa fyrir viðburðinum og er hann uppskera listamannadvalar listamanna frá Íslandi, Noregi og Slóvakíu hér á landi. Sóley Sigurjónsdóttir og Snæi Jack kíkja til okkar og ræða um viðburðin og Rask listamannakollektíf. Anna María Bogadóttir arkitekt verður tekin tali um heimildamynd hennar sem heitir Jarðsetning. Myndin, sem er hluti af kvikmyndahátíðinni Riff sem hefst í dag, fjallar um gamla Iðnaðarbankahúsið í Lækjargötu og niðurrif þess. Og Sigurlín Bjarney Gísladóttir heldur áfram að huga að gráti og tárum í Víðsjá og í þriðja pistli sínum um það efni beinir Sigurlín Bjarney sjónum að tárunum sem flæða um trúarbrögð, goðsögur og bókmenntatexta.

Further episodes of Víðsjá

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV