Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Francesca Woodman og Samastaður í tilverunni - a podcast by RÚV

from 2022-01-05T16:05

:: ::

Í Víðsjá dagsins fjöllum við um þrjár listakonur: Málfríði Einarsdóttur, bandaríska ljósmyndarann Francescu Woodman og fjöllum um nýja bók um verk myndlistarkonunnar Jónu Hlífa Halldórsdóttur Við hugum að ný útkominni bók um myndlist sem heitir Brim Hvít Sýn en þar er fjallað um myndlist Jónu Hlífar Halldórsdóttur, innsetningar og textaverk hennar. Jóna Hlíf hefur verið iðin við myndlist sína á undanförnum árum jafnframt því sem hún hefur brunnið fyrir baráttumálum myndlistarmanna og stýrt Gerðarsafni í Kópavogi um tíma. Auður Aðalsteinsdóttir er ritstjóri þessarar nýju bókar og jafnframt útgefandi hennar undir merkjum Ástríkis, Auður verður gestur Víðsjár undir lok þáttar og ræðir við okkur um Jónu Hlif og verk hennar. Í gærkvöldi hófst fyrsti lestur á nýrri kvöldsögu hér á Rás1. Um er að ræða Samastað í tilverunni eftir Málfríði EInarsdóttur. Samastaður í tilverunni er fyrsta bók Málfríðar, að stofni til sjálfsævisögulegt verk, og kom út þegar Málfríður var 78 ára. Hún hafði skrifað verkið ártugum fyrr og reynt að fá það útgefið án árangurs þar til árið 1977. En Víðsjá hefst á umfjöllun um bandaríska ljósmyndarann Francesca Woodman sem lést aðeins 22 ára árið 1981.

Further episodes of Víðsjá

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV