Gunnarshólmi, Pulitzer, Dylanmennirnir, Suzanne Vega - a podcast by RÚV

from 2021-06-14T16:05

:: ::

Í Víðsjá dagsins verður rætt við tónskáldið Þórð Magnússon um tónverk hans við ljóðið Gunnarshólma eftir Jónas Hallgrímsson sem nú kemur út í hljóðriti. Arnljótur Sigurðsson tekur fyrir lagið Tom's Diner með Suzanne Vega í tónlistarhorninu Heyrandi nær. Víðsjá hugar einnig að tónlistarmanninum Bob Dylan, en hann varð áttræður þann 24. maí síðastliðin og í kjölfar þess stórafmælisins rifjaði Þórdís Gísladóttir, rithöfundur, upp um tíu ára grein eftir sænska tónlistarblaðamanninn Hönnu Fahl þar sem hún setur fram fyrirbærið Dylanmenn. Hlustendur heyra einnig af nýrri Pulitzer verðlaunabók, The Nightwatchmen eftir Louise Erdrich, en verðlaunin voru afhent á föstudag. Umsjón: Guðni Tómasson og Tómas Ævar Ólafsson.

Further episodes of Víðsjá

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV