Elvis Presley, Lillian Hardin Armstrong, Skúlptúr/Skúlptúr - a podcast by RÚV

from 2020-12-14T16:05

:: ::

Efni Víðsjár í dag: Á bakvið hverja karlhetju er oftast nær að finna styttu og stoð, jafnan öfluga eiginkonu sem á drjúgan þátt í velgengni maka síns og hvetur til dáða. Í tónlistarhorninu Heyrandi nær ætlar Arnljótur Sigurðsson að rýna létt í Ungfrú Lillian Hardin Armstrong og hennar lykilhlutverk í umbreytingu djasstónlistar fyrir 100 árum síðan. Ólöf Gerður Sigfúsdóttir fjallar í myndlistarpistli um tvær nýjar einkasýningar sem hafa verið opnaðar í sýningarröðinni Skúlptúr/Skúlptúr í Gerðarsafni, þar sem leikgleði og tilraunastarfsemi eru í fyrirrúmi. Og hugað verður að röddunum sem þú vilt heyra þegar þú fæðist og þegar þú deyrð, rætt verður við skáldið Diddu um Elvis Presley og jólin. Umsjón: Eiríkur Guðmundsson

Further episodes of Víðsjá

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV