Án titils, Tove, bókverk og líkamleiki - a podcast by RÚV

from 2021-11-11T16:05

:: ::

Á dögunum kom út platan Án tillits úr smiðju Magnúsar Jóhanns Ragnarssonar og Skúla Sverrissonar. Á plötunni mætast tvö hljóðfæri, píanó og bassi, í tíu áferðarfallegum lögum og er þeim ætlað að fanga augnablikin sem myndast þegar að tveir vinir spila saman. Rætt verður við Magnús Jóhann um plötuna í Víðsjá dagsins. Víðsjá veltir líka sér kvikmyndinni Tove sem er sýnd um þessar mundir í Bíó Paradís. Myndin byggir á lífi finnlandssænsku listakonunnar Tove Jansson sem heimsfræg er fyrir teikningar sínar og sögur um múmínálfana. Einnig verður fjallað um listbókamessu sem haldin verður í Ásmundarsal um helgina og rithöfundurinn Ragnheiður Harpa Leifsdóttir heldur áfram hugleiðingum sínum um líkamleika í pistli í þætti dagsins. Umsjón: Guðni Tómasson

Further episodes of Víðsjá

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV