Lilja Sigurðardóttir og Margrét Pála - a podcast by RÚV

from 2021-01-09T13:00

:: ::

Lilja Sigurðardóttir var nýbúin að klára samræmdu prófin þegar hún hitti konuna sína, Margréti Pálu, í fyrsta skipti. Lilja varð strax skotin í Margréti sem er fimmtán árum eldri og þegar þær hittust aftur nokkrum árum síðar gafst Lilja ekki upp fyrr en hún sannfærði Margréti um að komast yfir eigin aldursfordóma og samþykkja stefnumót. Lilja Sigurðardóttir, glæpasagnahöfundur, og Margrét Pála Ólafsdóttir, stofnandi Hjallastefnunnar, hittust fyrst þegar sú fyrrnefnda kom í heimsókn í vinnuna til móður sinnar sem deildi skrifstofuhúsnæði með Margréti Pálu. Margrét og Jóna, móðir Lilju, voru ágætisvinkonur og Margrét tók eftir því að ung en bráðger dóttir Jónu fór að venja komur sínar á skrifstofuna og jafnvel oftar en tilefni var til. „Ég var reyndar undrandi á því hvað hún sótti það alltaf fast að sitja lengi og ég heyrði það í gegnum þunna veggina að hún var að sannfæra mömmu sína um að koma yfir til okkar eða að bjóða mér yfir í kaffi hjá henni,“ rifjar Margrét upp. Það varð fljótlega ljóst að Lilja hafði áhuga á þessari konu á skrifstofunni og vildi vera sem mest nálægt henni. Lilja og Margrét kíktu í Gestaboð til Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttur og sögðu frá fyrstu kynnum og sambandinu sem fór hægt af stað en hefur staðið yfir í þrjá áratugi.

Further episodes of Gestaboð

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV